Flýtilyklar
Aðalþing nær markmiðum Kópavogs um hljóð- og málvitund í þriðja sinn
Í stefnu Kópavogs um mál og lestur í leik- og grunnskólum, frá árinu 2016, er stefnt að því að við lok skólaársins 2020 hafi 90%, fimm ára barna öðlast meðal- eða góða færni samkvæmt skimunarprófinu Hljóm-2.
Í vor var skimunarprófið Hljóm-2 lagt fyrir 5 ára börn í Aðalþingi, niðurstöður sýna að 97% barnanna hafi öðlast meðal- eða góða færni samkvæmt prófinu og hefur markmið stefnunar því verið náð öll árin síðan að stefnan var sett.
Eitt af leiðarstefjum leikskólans Aðalþings er að hvetja og hjálpa barninu að finna hvað vekur áhuga hjá því, hvað því finnst skemmtilegt. Aðalþing byggir á skapandi skólastarfi þar sem námsumhverfi leikskólans tekur mið af því að börnin séu virk og læri í gegnum leikinn í víxlverkan umhverfis og sjálfs. (Skólanámskrá Aðalþings 2018-2019). Læsi er einn af grunnþáttum menntunar samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla (2011), í Aðalþingi er fundinn snertiflötur á leik, læsi og máli (e. play-literacy nexus) og þannig unnið með læsi samkvæmt hugmyndum Roskos og Christie (2011).
Hljóm-2 er greiningartæki, aldursbundin skimun sem er lögð fyrir til að meta hljóðkerfis- og málmeðvitund barna í elsta árgangi leikskólans í því skyni að greina þau börn sem eru í áhættu fyrir síðari lestrarerfiðleika. Slök hljóðkerfis- og málvitund er talin aðalorsök lestrarvanda hjá 88% barna. Í leikskólanum er sérstaklega unnið með þeim börnum sem mælast með slaka eða mjög slaka færni.