Öll nýju börnin byrjuð í Aðalþingi

Núna hafa 31 barn hafið aðlögun í Aðalþingi. Formlegri aðlögun verður því lokið fyrir 1. september. Til að geta tekið við öllum börnunum svona fljótt í upphafi skólaárs fá öll nýju börnin úthlutað dvalartíma frá klukkan 9 til 15 daglega. Vonir standa til að fljótlega verði hægt að bregðast við óskum um annan dvalartíma ef slíkar óskir berast.

Sótt er um breytingar á dvalartíma í Völu innritunarkerfinu, þær eru svo afgreiddar eftir því sem aðstæður leyfa. Reiknivél leikskólagjalda í Kópavogi er hér á vefsvæði Kópavogs.
https://www.kopavogur.is/is/ibuar/daggaesla-og-skolar/leikskolar/reiknivel-leikskolagjalda


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook